[18:08]
Heilbrigðisráðherra (Guðmundur Árni Stefánsson) :
Virðulegi forseti. Ég hygg að það komi ekki að gagni að framlengja þá umræðu sem fram fór í þinginu fyrr í dag varðandi spilakassamálið. Ég tel æskilegt að við sjáum niðurstöðu þeirra mála áður en nokkuð er fullyrt í því efni.
Vitaskuld hefur það engu að síður áhrif á starfsemi SÁÁ ef þau mál þróast á þann veg sem 5. þm. Vestf. gaf til kynna, að þar yrði tekjutap til SÁÁ. Ég trúi því hins vegar ekki fyrr en ég tek á. En ef svo fer þá er ég tilbúinn að endurskoða og endurmeta þær forsendur sem hér eru lagðar til grundvallar.
Varðandi þann þátt málsins að sértekjur eru áformaðar hærri en verið hefur þá hygg ég að það séu um það bil 3.000 innlagnir á Vog, Staðarfell og Vík, þessi helstu meðferðarúrræði SÁÁ. Auðvitað er ekki hægt að fullyrða neitt um það á þessu stigi máls hvernig til tekst með gjaldtöku af þeim toga sem lagt er upp með. Hins vegar vil ég segja það að nálgun þess máls er með þeim hætti að við það verður miðað að
meðferðaraðilar sjálfir leggi fram tillögur að gjaldtökunni, hvernig að henni verði staðið, en fyrirkomulagið verði síðan háð staðfestingu ráðherra.
Í viðræðum við forsvarsmenn SÁÁ telja þeir þessa nálgun máls ekki óraunhæfa. Meðal annars er vísað til þess að fyrir árið 1987 þekktist slík gjaldtaka þó undir öðrum formerkjum væri. Hér er því ekki um nýmæli að ræða heldur fyrirbrigði sem áður er þekkt.
En ég árétta að hugur minn til þessa máls er ljós. Ég hef áhuga á að tryggja áframhald þessa rekstrar. Á hinn bóginn liggur það fyrir að fjárveitingin er óskipt sem og fjárbeiðnin sem er auðvitað lykilatriði málsins.