Umfjöllun um skýrslu frá Ríkisendurskoðun í menntamálanefnd

16. fundur
Þriðjudaginn 19. október 1993, kl. 13:43:37 (363)


[13:43]
     Svavar Gestsson :
    Virðulegi forseti. Vandinn í þessu máli er sá að meiri hluti menntmn. hefur hafnað því að ræða málið frekar. Það er að vísu rétt hjá formanni nefndarinnar að málið fékkst rætt á fundi hennar í morgun. Það er kannski ástæða til að þakka fyrir það að málið sé tekið fyrir á reglulegum fundi menntmn. en það var ekki haldinn sérstakur fundur í nefndinni um þetta mál að beiðni hv. 18. þm. Reykv. heldur vék formaður menntmn. sér undan því verkefni í marga mánuði og það var ekki kallað til fundar um þetta mál í nefndinni fyrr en komið var fram á haust og boðaður var reglulegur fundur núna í morgun. Þess vegna er það auðvitað mjög athyglisvert og umhugsunarvert hvernig á þessu máli hefur verið haldið og það er bersýnilega rangt, sem hv. formaður menntmn. reyndi að skýla sér á bak við, að fjárln. hafi fjallað um málið og tæmt umfjöllun sína. Það er ekki svo. Fjárln. tekur málið fyrir og vísar því til þingmanna og sérstaklega til menntmn., segir hv. 6. þm. Vestf. En það er ekki þannig að fjárln. hafi lokið umfjöllun um þetta mál. Þess vegna er þetta mál því miður, segi ég --- því miður, virðulegi forseti --- enn þá opið og alveg óhjákvæmilegt að forusta þingsins taki það til meðferðar.