Lánsfjárlög 1993

16. fundur
Þriðjudaginn 19. október 1993, kl. 16:38:55 (402)


[16:38]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég vil nota tækifærið til að vekja athygli á því í kjölfar ræðu hv. 2. þm. Vestf. sem hér talaði áðan var hæstv. fjmrh. að lofa fjárlög yfirstandandi árs og hefði hann kannski mátt spara sér að gera það á haustdögum á síðasta ári því að nú þegar samkvæmt þessu frv. hér erum við að ræða um ríkissjóðshalla upp á 12,3 milljarða kr. en ekki 6,2 eins og hæstv. fjmrh. kynnti þegar frv. var kynnt á síðasta ári.