Kostir þess að gera landið að einu kjördæmi

25. fundur
Fimmtudaginn 28. október 1993, kl. 14:13:12 (795)


[14:13]
     Flm. (Jóhannes Geir Sigurgeirsson) (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Nú bað hv. þm. mig um miklu lengri ræðu en ég get flutt á þeim tveim mínútum sem ég hef hér. Ég get þó sagt þingmanninum að ég hef ekki rætt mikið opinberlega um þá breytingu sem er fyrirhuguð á sveitarstjórnarstiginu og kosið er um í næsta mánuði einfaldlega vegna þess að ég tel mig vera einn af ábyrgðarmönnum þeirrar aðgerðar þar sem ég studdi á síðasta þingi þau lög sem unnið er eftir.
    Ég get hins vegar sagt hv. þm. að það er mín skoðun að það verði ekki mikil breyting eftir þá kosningu. Ég held hins vegar að umræðan um valddreifingu stærri stjórnsýslueiningar úti á landi og flutning valds þangað sé komin á fulla ferð í okkar þjóðfélagi og hún muni halda áfram eftir kosningarnar 20. nóv. og þar muni menn leita nýrra leiða. Ég hygg að það sé styttra í það heldur en hv. þm. telur að menn finni þeim vilja sínum nýjan farveg. Og ég vil taka undir það sem kom fram í ræðu hv. 6. þm. Vestf. hér áðan að í þeirri umfjöllun allri eru menn í raun að ræða um einhverja útfærslu á því sem menn hafa stundum kallað þriðja stjórnsýslustigið. Ég minni hv. þm. á það líka, að í raun erum við í dag á mjög óburðugan hátt að framkvæma hið þriðja stjórnsýslustig án nokkurs valds með þeim verkefnum sem sveitarfélögin í dag hafa falið byggðasamlögum, héraðsnefndum, landshlutasamtökum og öðrum slíkum samtökum. Það er bjargföst skoðun mín að þessi umræða muni halda áfram og við sem erum í stjórnmálum munum finna þessu eðlilegan farveg í okkar stjórnskipun.