[15:21]
Flm. (Jóhannes Geir Sigurgeirsson) (andsvar) :
Virðulegur forseti. Ég hefði sjálfsagt getað fallið frá andsvarinu því að hv. þm. nefndi það í ræðu sinni sem ég ætlaði að vekja athygli á en það er það atriði að þar sem landslistar hafa verið í boði, hvort sem það er að landið sé eitt kjördæmi eða að hluta kosið á landslista þá hefur það alls staðar farið eftir, eins og hv. þm. benti á, að konum hefur fjölgað verulega við þessa breytingu.
Þetta var nú eitt af þeim atriðum sem ég hafði í huga þegar ég var að semja mína framsögu, en það var margt sem ég varð að fella niður vegna þess að ég hafði nokkuð ströng tímamörk. En ég undirstrika það sem hv. þm. sagði að þetta hefur alls staðar verið reynslan þar sem þessar breytingar hafa átt sér stað.