Tilkynning um utandagskrárumræðu

29. fundur
Miðvikudaginn 03. nóvember 1993, kl. 13:32:01 (1010)

     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
    Áður en gengið er til dagskrár vill forseti taka fram að fyrirhugað er að fram fari utandagskrárumræða á þessum fundi um vanda skipasmíðaiðnaðarins. Málshefjandi er hv. 3. þm. Vesturl., Jóhann Ársælsson. Reiknað er með að umræðan hefjist um kl. 3.