Vegalög

29. fundur
Miðvikudaginn 03. nóvember 1993, kl. 14:54:07 (1041)

[14:54]
     Ingibjörg Pálmadóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil alls ekki rugla þessum tveimur málum saman RALA, Hvanneyri og Vegagerðinni í Borgarnes, vegna þess að það hefur verið unnið að því um margra ára skeið að RALA fari á Hvanneyri og um það hefur verið samkomulag þó ekki sé lengra komið. En í sambandi við flutning Vegagerðarinnar í Borgarnes fannst mér ég ekki fá alveg skýr svör hjá hæstv. ráðherra, hvert er hans álit, samt finnst mér hann frekar vera á móti því. Ég legg það upp eftir hans orðum að hann sé á móti þeim flutningi og telji ekki rétt að flytja höfuðstöðvar Vegagerðarinnar í Borgarnes.