Stjórnmálafundur í Þingvallabænum

31. fundur
Þriðjudaginn 09. nóvember 1993, kl. 13:51:24 (1138)

[13:51]
     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
    Frú forseti. Mér er að vísu ókunnugt um hvaða ástæður liggja að baki því að fundur er auglýstur á þessum stað á þessum tíma. Það er hins vegar rétt sem hér hefur komið fram að einn af okkar þingmönnum í Suðurl. hefur staðið mjög myndarlega að fundaherferð í okkar kjördæmi og með miklum ágætum.
    En vegna þessarar fyrirspurnar um fundarstað og fundartíma þá er rétt að leita réttra upplýsinga þar um og gefa þeim þingmönnum sem hér hafa spurt réttar upplýsingar þegar þeirra hefur verið aflað.