[15:54]
Stefán Guðmundsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvort við þurfum að vera að karpa þetta, ég held að hæstv. samgrh. viti betur. Ég held að það sé alveg ljóst í hans huga að auðvitað tengist fiskvinnslan höfnunum, það er skyld starfsemi. Ég er nærri viss um það að undir þetta mundi einnig flokkast starfsemi Eimskipafélag Íslands, hæstv. ráðherra.