Sameining sveitarfélaga

38. fundur
Miðvikudaginn 17. nóvember 1993, kl. 14:00:47 (1485)

[14:00]
     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég get ítrekað það hér sem ég sagði rétt áðan að ég mun ekki hafa frumkvæðið að því að leggja til lögþvingun varðandi sameiningu sveitarfélaga ef það verður lítið um sameiningar nk. laugardag. Ég hlýt að setja það fram hér sem ég hef sett fram áður að ég tel að það sé fyrst og fremst á vettvangi Sambands sveitarfélaga sem eigi að fjalla um næsta skref í þessu máli. Væntanlega verður það gert á landsþingi Sambands ísl. sveitarfélaga næsta haust ef það verður lítið um sameiningar og það er þá þeirra fyrst og fremst að leggja fram hvert framhaldið á þessu verður.