Flutningur verkefna til sýslumannsembættanna

38. fundur
Miðvikudaginn 17. nóvember 1993, kl. 15:43:25 (1517)

[15:43]
     Tómas Ingi Olrich (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Þó að þeir þekkist vel Austfirðingarnir, hv. þm. Jón Kristjánsson þekkir sjálfsagt hv. þm. Gunnlaug Stefánsson betur en aðrir þingmann hér og veit að hv. þm. Gunnlaugur Stefánsson er snöfurlegur maður og grípur til ráðstafana skjótt, þá hygg ég að það sé ljóst að sú þáltill. sem hér er borin fram er ekki borin fram eftir þau svör sem komu fram hjá forsrh. í gær, þannig að það er ekki mjög beint orsakasamband sem hér hefur verið imprað á.