[17:26]
Páll Pétursson (andsvar) :
Frú forseti. Ég skaut náttúrlega ekkert yfir markið. Ég hitti nákvæmlega beint mark eins og sést á viðbrögðum hæstv. landbrh. Auðvitað hefur verið reynt að halda á þessum sjúkdómavarnaþætti eins vel og við höfum mögulega getað og ég er ekkert að álasa ykkur fyrir það. Ég tel að það sé okkur ákaflega mikilvægt að halda honum til haga og ég veit að menn hafa lagt sig fram í því efni, bæði yfirdýralæknir, starfsmenn ráðuneytisins og aðrir sem að því hafa komið. En það er hins vegar ekki ókleifur þröskuldur. Árangurinn er ekki þannig að hann gulltryggi okkur neitt til frambúðar.