[18:00]
Eyjólfur Konráð Jónsson (andsvar) :
Herra forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir svörin, þau nægja mér eiginlega. Ég þekki þingmanninn það vel að mér er það ljóst að þó hann segði ,,ekki sérstaklega mikinn ugg`` þá hugsa ég að hann sé töluverður sá uggur sem í því orðalagi felst. Ég get svo sem ósköp vel tekið undir hans sjónarmið í því efni og ég segi ekkert annað en það að ég vona að drengskaparmaðurinn Egill Jónsson standi sig í að gæta hagsmuna Íslendinga og hugsi sig nú vel um til að ekki fari svo að hann verði einmitt sá sem fremstur er eða með þeim fremstu í gæslu íslenskra hagsmuna, ég tala nú ekki um í sambandi við landbúnaðinn.