Tekjustofnar sveitarfélaga

42. fundur
Þriðjudaginn 23. nóvember 1993, kl. 15:44:04 (1763)


[15:44]
     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Varðandi það síðasta þá hef ég ítrekað sagt hér að það er verið að opna heimild til hækkunar á útsvarinu og einnig varðandi fasteignaskatt á atvinnuhúsnæði og það er gert ráð fyrir að þessi sveitarfélög að hluta til bæti sér það með sama hætti og önnur sveitarfélög í gegnum þessa álagningarstofna.