[14:55]
Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
Herra forseti. Ástæðan fyrir því að ég blandaði mér í umræðuna um þetta atriði var sú að mér þótti nóg komið hversu oft nafn eins ákveðins manns var dregið hér inn í umræðuna með ákveðnum hætti sem mér fannst óviðeigandi og ósmekklegt.