[15:19]
Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
Hæstv. forseti. Ég finn að þingmönnum finnst ég fara mér frekar hægt í einkavæðingunni og ég skal reyna að taka mig á í þeim efnum. En þó að þessi breyting verði endanlega ákveðin fyrir áramótin er ljóst að kostnaðaráhrifn þurfa sinn tíma til að fjara út og þess vegna verða þau kannski minni en ella á fyrsta árinu. Eigi að síður er gert ráð fyrir að klára þetta verk, eins og ég sagði í upphaflegu svari mínu, fyrir áramótin.