Einar K. Guðfinnsson :
Virðulegi forseti. Það er nauðsynlegt í þessari umræðu að vekja athygli á því að nefnd sem hæstv. menntmrh. skipaði og skilaði áliti á þessu ári, varðandi framtíðarskipan mála í Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi, lagði til á sínum tíma að í Reykjanesi yrði stofnaður grunnskóli sem sérstakt úrræði fyrir unglinga á aldrinum 14--16 ára sem talið er að þurfi að skipta um umhverfi af ýmsum félagslegum ástæðum. Þessi tillaga byggðist m.a. á því mati forstöðumanns kennsludeildar fræðsluskrifstofu Reykjavíkurborgar að í ár þyrftu um 2.400 nemendur í Reykjavík sérkennslu vegna erfiðleika af ýmsu tagi. Af þessum nemendahópi eiga 800 nemendur m.a. í örðugleikum vegna félagslegs vanda af ýmsu tagi og af þeim eru um þriðjungurinn í 8.--10. bekk grunnskólans. Það er mat forstöðumanns kennsludeildarinnar að þessir nemendur hefðu gott af því að komast í öruggt umhverfi þar sem friður gæfist til náms og fengju aðstoð við að byggja upp sterkari sjálfsmynd, alveg eins og við höfum hugsað okkur í þessum tillögum varðandi framtíð Reykjanesskólans. Þess vegna harma ég það enn að það skuli hafa verið ákvörðun menntmrn. á einni ögurstund að slá af þessa góðu hugmynd, sem þarna hefði getað komið til móts við þá nemendur sem hér er verið að fjalla um.