Skattamál

47. fundur
Þriðjudaginn 30. nóvember 1993, kl. 20:07:45 (2092)


[20:07]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Eftir stendur í þessari umræðu að þessi breyting á kerfinu var keyrð það hratt

fram að það kallaði á miklu hærri afföll heldur en voru þolanleg fyrir þolendur þess. Ég er því miður nánast viss um það að sá hópur er stærri en við sjáum fyrir okkur núna sem stendur í þessum sporum, eins og ég nefndi hér áðan, og er að horfa fram á það að halda ekki sínu húsnæði vegna þeirra kjara og þeirra affalla sem menn eru að taka á sig í húsbréfakerfinu.