Lánsfjárlög 1993

47. fundur
Þriðjudaginn 30. nóvember 1993, kl. 21:57:06 (2128)


[21:57]
     Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er nú kannski á mörkunum að það eigi að kalla þetta andsvar, því þetta er fremur svar við fyrirspurn sem kom frá hv. þm. Ég kannast ekki við að fjmrh. hafi nýtt þessa heimild sem verið er að biðja um. Það kann hins vegar að vera að einhvers staðar hafði peningar fundist til bráðabirgða og sjálfsagt er búið að vinna verkið. Það er oftsinnis sem það er gert í trausti þess að fjárveitingarheimild fáist eða lánsheimild fáist. En heimildin hefur ekki verið nýtt af hálfu fjmrn., enda er slíkt óheimilt fyrr en hún liggur fyrir og er afgreidd af þinginu. En það þýðir ekki að verkið hafi tafist því oft er hægt

að vinna verkið, annað hvort með því að sá sem vinnur það lánar eða að hægt er að fá innan ársins lán sem er þá nýtt í því skyni.