Fjárlög 1994

53. fundur
Fimmtudaginn 09. desember 1993, kl. 16:49:26 (2420)


[16:49]
     Sturla Böðvarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég fagna því að hv. 1. þm. Norðurl. e. skuli vera svo ánægður með okkar tillögu, sem meiri hluti fjárln. hefur lagt hér fram, og að sjálfsögðu gefst okkur færi á því í fjárln. að skoða öll þessi mál betur, það er tími til þess enn. En aðalatriðið er auðvitað það að hérna eru lagðar tilteknar áherslur en ég fagna því hins vegar ef stjórnarandstaðan getur fylgt okkur í því.