Fjárlög 1994

53. fundur
Fimmtudaginn 09. desember 1993, kl. 17:48:46 (2427)


[17:48]
     Sturla Böðvarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hv. 2. þm. Austurl. gerði athugasemd við það að ekki væri í brtt. fjárln. gert ráð fyrir sérstökum fjárlagalið til ferðamálasamtaka landshluta. Vegna þessa er rétt að taka fram að fyrir þetta ár var veitt og gert ráð fyrir því að veita 5 millj. kr. til að skipta upp á milli ferðamálasamtakanna. Ástæðan fyrir því að þetta er inni á liðnum hjá Ferðamálaráði er að meiri hluti fjárln. telur eðlilegt að Ferðamálaráð skipti þessu, sérstaklega vegna þess að það er ekki nógu fast form á skipulagi ferðamálasamtakanna í sumum kjördæmum og þess vegna er langeðlilegast að Ferðamálaráð hafi með þessa skiptingu að gera. Hins vegar tek ég undir það með hv. þm. að það er afar mikilvægt að Ferðamálaráð víki sér ekki á nokkurn hátt undan því að skipta þessum fjármunum eins og til er stofnað.