Fjárlög 1994

53. fundur
Fimmtudaginn 09. desember 1993, kl. 17:57:34 (2437)


[17:57]
     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hv. þm. Jón Kristjánsson beindi til mín þeirri fyrirspurn hver væri afstaða mín til fjárlaganna og vitnaði þar til fyrirvara sem fram komu hjá mér í septembermánuði. Eins og hv. þm. veit þá hefur fjárlagafrv. í veigamiklum atriðum tekið breytingu, m.a. varðandi þá þætti sem ég var í mikilli andstöðu við og það breytir auðvitað miklu. Að öðru leyti mun mín afstaða koma fram við afgreiðslu fjárlaga líkt og hjá öðrum þingmönnum og ég vona að hv. þm. hafi þolinmæði til að bíða eftir því.