Fjárlög 1994

53. fundur
Fimmtudaginn 09. desember 1993, kl. 17:59:09 (2439)


[17:59]
     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
    Eins og hv. þm. veit þá stóð aldrei annað til en framkvæmdin á húsaleigubótunum tæki ekki gildi fyrr en 1. jan. 1995 þannig að það er auðvitað ástæða þess að þær eru ekki í þessu fjárlagafrv. En ég vona að hv. þm. haldi svefni yfir því að geta beðið eftir því að mín afstaða til fjárlaganna komi fram. Ég mun alveg halda svefni yfir því hvernig hann mun greiða atkvæði þannig að ég vona að það sé líkt og með komið.