Fjárlög 1994

53. fundur
Fimmtudaginn 09. desember 1993, kl. 18:40:40 (2449)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Forseti vil taka fram að hann hefur fengið í hendur skilaboð þess efnis að hæstv. fjmrh. hafi þurft að bregða sér frá og þess var vænst að hann kæmi aftur um klukkan 18. En forseti mun láta kanna það hvort hæstv. ráðherrar hafi möguleika til þess að vera við umræðuna og þá eigi síðar en að loknu matarhléi ef þeir eiga þess ekki kost fyrir kvöldverðarhlé.