[19:17]
Kristín Einarsdóttir (andsvar) :
Virðulegi forseti. Aðeins örstutt. Ég gerði mjög skýra grein fyrir því líka í ræðu minni áðan. Ég las upp orðrétt álit meiri hlutans og vitnaði lauslega í það sem minni hlutinn hafði sagt. Þannig að það er ekki bara í andsvari heldur gerði ég það líka í ræðu minni.