Fjárlög 1994

53. fundur
Föstudaginn 10. desember 1993, kl. 00:26:29 (2477)

     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
    Forseti vill taka fram vegna þeirra fyrirspurna sem hér var beint til forseta að forseti veit ekki annað en hv. formaður fjárln. sé innan seilingar og fylgist væntanlega með umræðunni. Forseti sá sem stýrir hér fundi hafði gert ráð fyrir því að vera við þessa umræðu að sjálfsögðu en hljóp í skarðið að stýra fundi og verður væntanlega laus innan stundar til þess að geta tekið þátt í umræðunum.