Fjárlög 1994

54. fundur
Föstudaginn 10. desember 1993, kl. 11:12:45 (2520)

[11:12]
     Páll Pétursson :
    Frú forseti. Þessi texti sem hér stendur á þingskjalinu er rangur. Það hefur fallið niður að ætla sérstaka upphæð til héraðsdóms Norðurlands vestra. Það eru fyrirheit um að það verði lagað fyrir 3. umr. Ég mun því sitja hjá við þennan lið.