Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1994

54. fundur
Föstudaginn 10. desember 1993, kl. 14:33:08 (2547)


[14:33]
     Ingibjörg Pálmadóttir (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. svörin. En aðeins nánar í sambandi við vistmenn á Kópavogshæli. Skil ég þá rétt að það muni engir útskrifast á næsta ári á sambýli frá Kópavogshæli? Engir vistmenn?