[14:09]
Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa ræðu. Það skýrðist margt, en annað varð óljósara á eftir og ekki síst það sem ég spurði um, hvort hefði til að mynda verið leitað til sveitarstjórna í Mývatnssveit. Það var nefnt að til hefði verið kallaður Jón Pétur Líndal sveitarstjóri. (Gripið fram í.) Já, en ef ég man rétt þá eru nú ein fjögur ár síðan Jón Pétur Líndal hætti sem sveitarstjóri í Mývatnssveit. Ef ég man rétt þá er hann sveitarstjóri upp á Kjalarnesi, búinn að vera í nokkur ár.
Í öðru lagi varðandi það sem kom fram hjá ræðumanni og ég hlýt að taka undir að menn verða að meta það á hverjum tíma hversu langt á að ganga þegar við erum að ræða auðlindir sem ekki eru endurnýanlegar. Nú tel ég reyndar að kísillinn í botni Mývatns endurnýist þó svo við höfum væntanlega unnið hann hraðar núna heldur en nemur endurnýjuninni. Hv. þm. sagði að það hlyti alltaf að vera matsatriði á hverjum tíma hversu langt ætti að ganga í slíku.
Þá vil ég inna hv. þm. eftir því hvort hann sé ekki sammála mér í því að við eigum að bíða með það þangað til um eða upp úr aldamótum að taka um það ákvörðun hvort eigi að ganga lengra í kísilvinnslu í botni Mývatns en eingöngu í Ytriflóa en mér skilst að Náttúruverndarráð leggi á það mikla áherslu að nú þegar verði ákveðið og helst lögfest að ekki verði farið í Syðriflóa.