Hollustuhættir og heilbrigðiseftirlit

60. fundur
Þriðjudaginn 14. desember 1993, kl. 16:53:38 (2654)


[16:53]
     Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Ég ætla út af fyrir sig ekki að gera ágreining við hæstv. forsrh. um það að málið skuli ganga til allshn. en ég legg þá ríka áherslu á það jafnframt að allshn. sendi málið bæði til heilbr.- og trn. og umhvn. til skoðunar þannig að þær geti þá gefið álit sitt á þessum fyrirhugaða flutningi sem hér er um að ræða.