Hollustuhættir og heilbrigðiseftirlit

60. fundur
Þriðjudaginn 14. desember 1993, kl. 16:54:19 (2655)


[16:54]
     Finnur Ingólfsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Í minni fyrri ræðu hér áðan spurði ég hæstv. forsrh. að því hvenær mætti vænta þess að frv. yrði flutt um tilflutning á Skógrækt ríkisins og Landgræðslu ríkisins frá landbrn. yfir til umhvrn. Fyrst þessi skriður er nú kominn á mál að menn eru farnir að færa verkefni og stofnanir til milli ráðuneyta, er þá ekki að vænta þess að menn fari að flytja þær stofnanir er samið var um í Viðey að skyldu fluttar?