[13:34]
Frsm. meiri hluta fjárln. (Sigbjörn Gunnarsson) :
Virðulegi forseti. Enda þótt frv. til fjárlaga fyrir árið 1994 sé nú tekið á dagskrá samkvæmt ákvæðum þingskapa, eins og hæstv. forseti gat um, þá hefur fjárln. ekki lokið endanlegri athugun sinni á frv. Auk þess liggur ekki fyrir álit efh.- og viðskn. um áhrif skattalagabreytinga á tekjur ríkissjóðs svo sem fyrir er um mælt í 2. mgr. 25. gr. þingskapa. Störfum fjárln. miðar hins vegar vel og er útlit fyrir að hún geti lokið störfum sínum fljótlega. Ég vil því óska eftir því, hæstv. forseti, að þessari umræðu verði frestað til þess tíma sem hæstv. forseti telur hagkvæman til áframhaldandi umræðna um málið.