Ráðstöfun aflaheimilda Hagræðingarsjóðs

61. fundur
Miðvikudaginn 15. desember 1993, kl. 21:32:46 (2713)


[21:32]
     Stefán Guðmundsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Mér er það ljúft og þegar við ræðum um stjórn fiskveiða, þegar það mál verður hér á dagskrá, þá mun ég gera grein fyrir afstöðu Kvennalistans og skýra hvað ég er að fara. En það hefur varla farið fram hjá þingheimi og ég veit ekki hvar þessi ágæta kvennalistakona hefur verið allan þennan tíma.