Ráðstöfun aflaheimilda Hagræðingarsjóðs

61. fundur
Miðvikudaginn 15. desember 1993, kl. 23:04:59 (2746)


[23:04]
     Steingrímur J. Sigfússon (um fundarstjórn) :
    Hæstv. forseti. Ef það er svo að komið sé að lokum umræðunnar og hæstv. sjútvrh. hafi ekki beðið um orðið, þá óska ég eftir því að hæstv. forseti kanni hvort hæstv. sjútvrh. hefur áhuga á því að fá orðið áður en umræðunni lýkur. --- Ef hæstv. forseti mætti vera að því að veita mér athygli, þá fer ég eindregið fram á það að þar sem m.a. hæstv. sjútvrh. er ekki í salnum og hefur verið heldur laus við verði áður en umræðunni lýkur kannað hvort hæstv. sjútvrh. hefur áhuga á því að taka til máls.