Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins

61. fundur
Fimmtudaginn 16. desember 1993, kl. 01:17:43 (2768)


[01:17]
     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Hv. 4. þm. Norðurl. e. hefur kvartað undan því í kvöld að ég hafi flutt stuttar ræður og athugasemdir. Hann hefur að vísu flutt margar ræður og langar og stundum stóryrtar, en að efni til hafa þær ekki gefið tilefni til langra svara og þar við situr.