Framleiðsla og sala á búvörum

62. fundur
Fimmtudaginn 16. desember 1993, kl. 16:13:45 (2826)


     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Forseti vill upplýsa að upp úr kl. 17 fer hér fram utandagskrárumræða. Umræðuefnið er staðan í atvinnumálum á Akureyri og viðbrögð ríkisstjórnarinnar við henni. Umræðan fer fram að ósk hv. 4. þm. Norðurl. e., Steingríms J. Sigfússonar. Hún fer fram skv. 1. mgr. 50. gr. þingskapalaga, þ.e. verður hálftíma umræða.
    Þá vill forseti upplýsa að að lokinni þeirri umræðu sem nú er á dagskrá, þ.e. um 4. dagskrármálið, er gert ráð fyrir atkvæðagreiðslum.