Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1994

69. fundur
Laugardaginn 18. desember 1993, kl. 16:09:38 (3086)


[16:09]
     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. umhvrh. fyrir svörin og vil auðvitað gagnrýna hann fyrir að flytja frv. með þessum hætti að hann hafi greinilega ekki lesið þau sem skyldi. Hvet hann enn til þess að hafa gott samráð við forseta Tófuvinafélagsins í framtíðinni og þakka honum sérstaklega fyrir að hafa ekki nefnt þann líkamshluta sem hann nefndi ekki hér áðan, hæstv. forseti.