[18:22]
Halldór Ásgrímsson (um fundarstjórn) :
Virðulegur forseti. Ástæðan fyrir því að ég bið um orðið er sú að ég taldi alls ekki nægilegt að fresta fundi í 15 mínútur eins og nú hefur komið í ljós og ég veit að forseti ætlar sér að fresta lengur. Ég tel hins vegar ekki hægt að fullyrða um það hvenær efh.- og viðskn. verður búin að ljúka störfum. Það hefur enn ekki verið hægt að boða fund í nefndinni og nefndin á eftir að skila framhaldsnefndaráliti. Þessu verður að sjálfsögðu hraðað eftir því sem nokkur kostur er. En hvort þessi nál. verða tilbúin klukkan átta er ekki hægt að fullyrða á þessari stundu.
Ég vil jafnframt geta þess að atkvæðagreiðsluskjal varðandi fjárlögin er, eftir því sem ég best veit, ekki tilbúið enn þá og þingflokkar þurfa einhvern tíma til þess að fara yfir það atkvæðagreiðsluskjal.
Ég tel, hæstv. forseti, að það hafi komið í ljós m.a. af þessum ástæðum að það var algjörlega ómögulegt að ljúka öllum þessum málum aðfaranótt sunnudags. Það lá líka fyrir þá að það þurfti að halda nefndarfundi í efh.- og viðskn. og skila framhaldsnefndaráliti svo eitthvað sé nefnt.
Þetta vildi ég að kæmi fram, hæstv. forseti, m.a. vegna þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað.