Ferill 4. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 4 . mál.
4. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 97/1993.
Flm.: Margrét Frímannsdóttir, Kristinn H. Gunnarsson.
1. gr.
Við fyrri málsgrein 11. gr. laganna bætist nýr töluliður er orðast svo:4. Lán til endurbóta eða útrýmingar á heilsuspillandi húsnæði.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Greinargerð.
Í 11. gr. laga um Húsnæðisstofnun ríkisins er tilgreint hverjir geta notið láns úr Byggingarsjóði ríkisins. Með frumvarpi þessu er lagt til að við greinina bætist nýr töluliður er felur í sér heimild handa sjóðnum til að veita jafnframt lán til endurbóta eða útrýmingar heilsuspillandi húsnæði.
Í eldri lagaákvæðum um Húsnæðisstofnun ríkisins var gert ráð fyrir að Byggingarsjóður ríkisins gæti veitt lán til útrýmingar heilsuspillandi húsnæði. Það ákvæði var fellt brott með lögum nr. 70/1990 og talið að þær lánsumsóknir sem bærust vegna þessa féllu þrátt fyrir það innan ramma laganna. Það hefur síðan komið í ljós að svo er ekki. Því telja flutningsmenn þessa frumvarps brýnt að svipað ákvæði verði sett á ný í lög um Húsnæðisstofnun ríkisins.
Ekki þarf að reikna með viðbótarkostnaði þar sem lánsumsóknir um endurbætur eða útrýmingu á heilsuspillandi húsnæði eru fáar.
Frumvarp þetta var lagt fram á síðasta þingi en hlaut þá ekki afgreiðslu.