Ferill 31. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 31 . mál.


32. Frumvarp til laga


um breytingu á lögum nr. 75 2. desember 1980, um þingfararkaup alþingismanna.

Flm.: Eggert Haukdal, Matthías Bjarnason,
Tómas Ingi Olrich, Guðjón Guðmundsson.

1. gr.

    Aftan við 8. gr. laganna bætist: Réttur til biðlauna fellur niður ef fyrrverandi alþingismaður tekur við starfi í þjónustu ríkis, sveitarfélags eða fyrirtækis sem að meiri hluta er í eign ríkisins enda fylgja stöðunni jafnhá eða hærri laun en þingfararkaup. Ella greiðist launamismunurinn til loka tímabilsins.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

     Á undanförnum árum hefur komið í ljós að ósamræmi er í ákvæðum laga um biðlaun ráðherra og þingmanna. Frumvarp þetta er flutt til að taka af öll tvímæli um að biðlaunagreiðslur falli niður ef sá sem þeirra á að njóta tekur við öðru starfi sem er jafnt eða hærra launað en þingfararkaup þegar hann lætur af þingmennsku.