Ferill 37. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 37 . mál.


40. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um Hæstarétt Íslands, nr. 75/1973, með síðari breytingum.

Flm.: Svavar Gestsson, Ragnar Arnalds, Guðrún Helgadóttir,


Hjörleifur Guttormsson, Jóhann Ársælsson, Kristinn H. Gunnarsson,


Margrét Frímannsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson,


Steingrímur J. Sigfússon.



1. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
    1. mgr. orðast svo:
                  Hæstarétt skipa átta dómarar. Forseti Íslands skipar hæstaréttardómara að fenginni tillögu dómsmálaráðherra.
    Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein er orðast svo:
                  Er ráðherra hefur ákveðið hvern hann hyggst gera tillögu um sem hæstaréttardómara leggur hann tillöguna fyrir Alþingi til samþykkis eða synjunar. Samþykki Alþingi tillögu ráðherra leggur hann hana fyrir forseta Íslands. Synji Alþingi staðfestingar á tillögu ráðherra gerir hann aðra tilnefningu og skal hún fá sömu meðferð.

2. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:
    Orðin „fær leyfi frá störfum um stundarsakir“ í 1. málsl. 1. mgr. falla brott.
    Við greinina bætist ný málsgrein er orðast svo:
                  Nú kýs hæstaréttardómari að hverfa til annarra starfa um stundarsakir, sex mánuði eða lengur, og skal þá auglýsa stöðu hans lausa samkvæmt lögum þessum. Sama á við ef hæstaréttardómari hyggst stunda önnur dómarastörf en honum eru falin lögum samkvæmt.

3. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Frumvarp þetta er flutt sem hluti af heildartillögugerð um breytingar á stjórnkerfinu. Hér er gert ráð fyrir því að breyta reglum um skipan og starfsemi Hæstaréttar með tvennum hætti:
    Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir að Alþingi staðfesti tillögu ráðherra um skipan hæstaréttardómara. Er það gert með 1. gr. frumvarpsins. Ráðherra skal samkvæmt greininni leggja tillögu sína um dómara fyrir Alþingi sem greiðir um það atkvæði hvort það geti fallist á tilnefninguna. Áður en ráðherra skilar tillögunni til forseta Alþingis hlýtur hann þó að gæta ákvæða 3. mgr. 5. gr. laga um Hæstarétt Íslands, þ.e. að leita umsagnar dómsins um dómaraefnið. Forseti setur tillöguna síðan á dagskrá. Hugsanlegt er að einhver þingnefnd (t.d. allsherjarnefnd) fjalli um tilnefningu ráðherra en um það mætti setja frekari ákvæði í þingsköp. Fallist Alþingi ekki á tillögu ráðherra verður að gera ráð fyrir því að hann geri nýja tillögu til þingsins og þannig koll af kolli uns þingið og ráðherrann hafa náð saman. Ekki er í frumvarpinu kveðið á um þetta ferli í einstökum atriðum þar sem eðlilegast er að það sé gert í þingsköpum Alþingis.
    Hér er um róttæka breytingartillögu að ræða. Nú getur ráðherra nánast óbundinn ákveðið hvaða umsækjanda sem er til þess að gegna starfi hæstaréttardómara, sbr. þó ákvæði 3. mgr. 5. gr. laga um Hæstarétt Íslands um umsagnarrétt dómsins um umsækjendur. Það er óeðlilegt og reynslan sýnir að ráðherrum er misjafnlega vel treystandi fyrir þessu verki. Því er hér lagt til að vald ráðherra verði takmarkað þannig að Alþingi verði að fallast á tillögu ráðherra áður en til skipunar kemur.
    Í frumvarpinu er í öðru lagi gerð sú breytingartillaga að hæstaréttardómari geti ekki tímabundið horfið til annarra starfa í sex mánuði eða lengur og að hæstaréttardómari geti alls ekki stundað önnur dómarastörf og þannig dæmt á tveimur stöðum. Hins vegar verður að undanskilja þau dómarastörf sem hæstaréttardómurum eru falin í öðrum lögum, sbr. dómstörf í synódalsrétti og landsdómi.
    Óeðlilegt er að hæstaréttardómari geti horfið til annarra starfa í lengri tíma og þar með þjónað öðrum aðila og orðið venslaður honum. Það er fráleitt og veikir óháða stöðu Hæstaréttar. Því er hér lagt til að hæstaréttardómarar geti ekki fengið leyfi til þess að stunda önnur störf og önnur dómarastörf en samkvæmt lögum.
    Hér er ekki gerð tillaga um að hæstaréttardómarar séu skipaðir til takmarkaðs tíma. Verður að ætla að sú aðferð við skipun dómaranna, sem hér er gerð tillaga um, tryggi nægilega vel, eða eins vel og kostur er, óhæði Hæstaréttar.
    Um þetta fyrirkomulag gætu verið skiptar skoðanir vegna þess að hér væri um of blandað saman framkvæmdarvaldi og löggjafarvaldi. Það er misskilningur í ljósi þeirrar staðreyndar að framkvæmdarvald, dómsvald og löggjafarvald ná saman í einum aðila, þ.e. í handhöfum forsetavalds þegar forseti Íslands forfallast.
    Einnig gæti vissulega komið til greina að dómnefnd fjalli um hæfi hæstaréttardómara og hún skili síðan álitsgerð. Það er ekki gerð tillaga um það hér þó að það fyrirkomulag væri vissulega betra en það sem nú er við lýði. Í frumvarpinu er farin sú leið sem flutningsmaður telur besta, þ.e. að Alþingi ráði úrslitum um skipan hæstaréttardómara með ráðherranum sem í hlut á.
    Meginrökin fyrir þessari breytingu eru þó þau að eðlilegt þykir að handhafi framkvæmdarvaldsins og löggjafarvaldið komi sér saman um æðstu fulltrúa dómsvaldsins.