Ferill 38. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 38 . mál.
41. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um meðferð opinberra mála, nr. 19/1991.
Flm.: Svavar Gestsson, Ragnar Arnalds, Guðrún Helgadóttir,
Hjörleifur Guttormsson, Jóhann Ársælsson, Kristinn H. Gunnarsson,
Margrét Frímannsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson,
Steingrímur J. Sigfússon.
1. gr.
25. gr. laganna orðast svo:
1. Ríkissaksóknari er æðsti handhafi ákæruvalds. Forseti Íslands skipar ríkissaksóknara til fjögurra ára í senn. Sama manninn má aðeins skipa tvívegis samfellt. Ríkissaksóknari skal fullnægja lagaskilyrðum til skipunar í dómaraembætti við Hæstarétt. Hann skal njóta sömu lögkjara og hæstaréttardómarar eftir því sem við verður komið.
2. Ríkissaksóknari hefur embættisskrifstofu í Reykjavík. Honum til aðstoðar eru vararíkissaksóknari og saksóknarar.
3. Forseti Íslands skipar vararíkissaksóknara til fjögurra ára í senn. Sama manninn má aðeins skipa tvívegis samfellt. Vararíkissaksóknari skal fullnægja sömu lagaskilyrðum og ríkissaksóknari.
4. Forseti Íslands skipar aðra saksóknara. Skulu þeir fullnægja skilyrðum til skipunar í embætti héraðsdómara. Annað starfslið við embætti ríkissaksóknara, þar á meðal löglærða fulltrúa, ræður dómsmálaráðherra eftir tillögu ríkissaksóknara.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Hér er flutt frumvarp til laga um breyting á lögum um meðferð opinberra mála. Frumvarpið felur í sér þá róttæku breytingartillögu við lögin að ríkissaksóknari — og vararíkissaksóknari — verði aldrei skipaðir til lengri tíma en fjögurra ára í senn. Það er fráleitt að æviráða mann sem hefur jafnmikið vald og ríkissaksóknari. Það var vissulega framför þegar ákæruvaldið var flutt frá pólitískum ráðherra yfir til ríkissaksóknara. En þá láðist að tryggja um leið að ríkissaksóknarinn byggi við sama aðhald og stjórnmálamennirnir, þ.e. að hann yrði aðeins ráðinn til takmarkaðs tíma í senn.
Það er óframkvæmanlegt fyrir nokkurn mann að gegna þannig starfi ríkissaksóknara að alltaf og ævinlega sé hafið yfir gagnrýni. Þeim mun brýnna er þá að ráðningin sé aðeins til takmarkaðs tíma en ekki til ótakmarkaðs tíma eins og nú háttar til. Hætta er á því að hvers konar klíkuskapur og geðþóttaviðhorf ráði gerðum manna sem sitja of lengi í starfi. Það er háskalegt ekki síst þegar um er að ræða einstaklinga sem einir gegna starfi eins og því embætti sem hér um ræðir.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Hér er lagt til að ríkissaksóknari og vararíkissaksóknari verði alltaf skipaðir til takmarkaðs tíma.
Í 1. mgr. felast þau nýmæli að ríkissaksóknari verði skipaður til fjögurra ára í senn og að sama manninn megi ekki skipa lengur en tvö ráðningartímabil samfellt.
Í 2. mgr. felast ekki nýmæli en í 3. mgr. er kveðið á um lengd skipunartíma vararíkissaksóknara sem skal vera sá sami og skipunartími ríkissaksóknara.
Ekki felast nýmæli í 4. mgr.
Um 2. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.