Ferill 65. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. –
65
. mál.
68. Fyrirspurn
til félagsmálaráðherra um húsnæðiskannanir sveitarfélaga.
Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.
Hversu mörg sveitarfélög könnuðu heildarþörf á félagslegu húsnæði í umdæmi sínu á árunum 1991–1993, sbr. 45. gr. laga nr. 97/1993, um Húsnæðisstofnun ríkisins?
Hversu mörg sveitarfélög hafa gert áætlanir til fjögurra ára um byggingu og kaup á félagslegu húsnæði, svo sem skylt er samkvæmt lögum, á grundvelli slíkra húsnæðiskannana?
Hvernig hefur verið staðið að húsnæðiskönnunum sveitarfélaganna? Hafa þær verið samræmdar þannig að um sambærilegar niðurstöður sé að ræða?
Hafa húsnæðiskannanir sveitarfélaga verið lagðar til grundvallar lánveitingum Húsnæðisstofnunar ríkisins til félagslegra íbúðarbygginga eða kaupa á undanförnum þremur árum?