Ferill 112. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 112 . mál.

116. Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um skrifstofur heilbrigðismála.

Frá Þuríði Backman.



    Hvernig miðar undirbúningi að stofnun skrifstofu heilbrigðismála í kjördæmum landsins, sbr. ályktun Alþingis frá 7. febrúar 1991?
    Hvernig samrýmist áformaður niðurskurður fjárveitinga til héraðslæknisembættanna ályktun Alþingis um uppbyggingu stjórnsýsluþáttar heilbrigðisstofnana úti í landshlutunum og stefnumörkun ríkisstjórnarinnar um flutning verkefna frá ríki til sveitarfélaga, þar á meðal á sviði heilbrigðismála?