Ferill 115. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. –
115
. mál.
120. Fyrirspurn
til samgönguráðherra um reglur um þjálfun, skírteini og vaktstöður sjómanna, sbr. lög nr. 47/1987.
Frá Guðmundi Hallvarðssyni.
Hafa verið settar reglur til að framfylgja alþjóðasamþykkt um þjálfun, skírteini og vaktstöður sjómanna á kaupskipum (STCW, 1978), sbr. 1. gr. laga nr. 47/1987?
Hafa verið settar reglur um heildarmönnun kaupskipa í samræmi við ályktun A. 481 sem samþykkt var á 12. þingi Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar árið 1981, sbr. 2. gr. laga nr. 47/1987?