Ferill 124. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. –
124
. mál.
133. Fyrirspurn
til kirkjumálaráðherra um aðskilnað útfararþjónustu frá lögboðnum verkefnum kirkjugarðsstjórna.
Frá Guðmundi Bjarnasyni.
Hvað hefur verið gert af hálfu dóms- og kirkjumálaráðuneytisins til að tryggja framkvæmd 2. mgr. 21. gr. laga nr. 36/1993, um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, frá gildistöku laganna 4. maí sl.?
Hafa Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma skilið útfararþjónustu sína og fjárhag hennar frá lögboðinni starfsemi sinni og hvernig er þessum málum háttað í öðrum prófastsdæmum?
Telur ráðherra að fyrirhuguð stofnun einkafyrirtækis Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma til að annast útfararþjónustu standist skilyrði nýju laganna um aðskilnað útfararþjónustu frá lögboðinni starfsemi kirkjugarðanna?
Kemur til greina að bæta fyrirtækjum í útfararþjónustu á Reykjavíkursvæðinu það fjárhagstjón sem þau kunna að hafa orðið fyrir eða verða fyrir í samkeppni við niðurgreidda útfararþjónustu Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma?