Ferill 125. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 125 . mál.


134. Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um kostnaðarauka og tekjutap vegna tilflutnings sýslumannsembætta.

Frá Ingibjörgu Pálmadóttur.



    Hefur ríkisstjórnin látið kanna:
    hvaða kostnaðarauka það mun hafa í för með sér fyrir einstaklinga að sýslumannsembætti víða um land verða lögð niður þannig að þeir verða að sækja þjónustu embættana annað,
    hve mikið tekjutap mun verða í verslun og þjónustu á þeim stöðum þar sem sýslumannsembætti verða lögð niður?