Ferill 136. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. –
136
. mál.
151. Fyrirspurn
til félagsmálaráðherra um starfsmenn félagsmálaráðuneytisins í barnaverndarmálum.
Frá Önnu Ólafsdóttur Björnsson.
Hve margir starfa sérstaklega að barnaverndarmálum í félagsmálaráðuneytinu, sbr. 3. gr. laga um vernd barna og ungmenna, nr. 58/1992? Hvaða fagmenntun hafa þeir starfsmenn?
Eru gerðar svipaðar faglegar kröfur til starfsmanna ráðuneytisins í barnaverndarmálum og annars staðar á Norðurlöndum, t.d. í Noregi?