Ferill 150. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 150 . mál.
167. Tillaga til þingsályktunar
um fullgildingu breytingar á Montreal-bókun um efni sem valda rýrnun ósonlagsins.
(Lögð fyrir Alþingi á 117. löggjafarþingi 1993.)
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd breytingu á Montreal-bókun frá 16. september 1987 um efni sem valda rýrnun ósonlagsins er gerð var í Kaupmannahöfn 25. nóvember 1992, sbr. Vínarsamning frá 22. mars 1985 um vernd ósonlagsins.
ATHUGASEMDIR REPRÓ
..........
Með þingsályktunartillögu þessari birtust þrjú fylgiskjöl. Á fskj. 1 var breyting á Montreal-bókuninni um efni sem valda rýrnun ósonlagsins, á fskj. 2 voru lagfæringar á greinum 2A og 2B í Montreal-bókuninni og á fskj. 3 voru lagfæringar á greinum 2C, 2D og 2E í Montreal-bókuninni. Um þessi fylgiskjöl vísast til þingskjalsins (lausaskjalsins). Breytingar þessar og lagfæringar verða enn fremur prentaðar í C-deild Stjórnartíðinda.