Ferill 168. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 168 . mál.


186. Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



    Hvernig eru greiðslur úr Framkvæmdasjóði aldraðra vegna einstakra læknisaðgerða ákveðnar?
    Hvaða sjúkrastofnanir hafa fengið slíkar greiðslur 1992 og 1993? Hversu háar voru greiðslurnar, sundurliðaðar á hvort ár og stofnun?
    Hver var aldur þeirra sjúklinga sem hér um ræðir:
         
    
    meðalaldur,
         
    
    lægsti aldur?